
Við erum að vinna að stuttum heimildaþætti um ferð Leikfélags Húsavíkur í Þjóðleikhúsið. Ef þið eigið áhugaverð myndbönd eða ljósmyndir frá ferðinni biðjum við ykkur endilega að senda okkur þau.
Með innsendingu samþykkið þið að myndefnið megi vera notað í þættinum.
Leiðbeiningar:
- Farðu á www.filemail.com
- Smelltu á Add Files og veldu myndirnar eða myndböndin sem þú vilt senda.
- Mjög mikilvægt: Settu netfangið husavik@husavik.com sem viðtakanda (í To / Recipient).
- Skráðu inn netfangið þitt og nafnið þitt.
- Þú mátt gjarnan skrifa stutta lýsingu í skilaboðareitinn um hvað sé á myndefninu.
- Smelltu á Send.
Það er ekki nauðsynlegt að stofna aðgang á Filemail til að senda inn skrár. Netfangið er husavik@husavik.com
Takk kærlega fyrir að hjálpa okkur að varðveita þessa skemmtilegu sögu!
